Á laugardeginum byrjuðu okkar drengir á því að leggja Ármann að velli nokkuð örugglega. Síðari leikurinn við Skallagrím var geysilega spennandi en tapaðist því miður með minnsta mun eftir að Valur hafði náð góðri forystu eftir tvo leikhluta 27-12. Á sunnudeginum tapaðist leikurinn við Tindastól en fram að lokaleikhluta var mikil spenna, aðeins eitt stig skildi að. Í lokaleiknum við Keflavík vannst nokkuð öruggur sigur þrátt fyrir að aðeins 4 stig hafi skilið í lokin en staðan var 42-22 eftir 3 leikhluta. Tindastólsdrengir stóðu uppi sem sigurvegarar og var það verðskuldað en okkar drengir hrepptu 3. sætið.
Laugardagur 24. nóvember
Valur - Ármann 46-24
Keflavík - Skallagrímur 27-39
Tindastóll - Ármann 50-14
Valur - Skallagrímur 46-47
Keflavík - Tindastóll 25-41
Sunnudagur 25. nóvember
Skallagrímur - Ármann 62-22
Valur - Tindastóll 29-43
Keflavík - Ármann 57-15
Tindastóll - Skallagrímur 22-13
Keflavík - Valur 42-46
Lokastaða
1. Tindastóll
2. Skallagrímur
3. Valur
4. Keflavík
5. Ármann/Þróttur
Sjá einnig myndir frá Hlíðarenda og vef KKÍ.
laugardagur, 24. nóvember 2007
Íslandsmót Hlíðarenda 24. og 25. nóv 2007
Helgina 24. og 25. nóvember 2007 fer fram önnur umferð í Íslandsmóti minnibolta 11 ára. Mótið verður haldið á Hlíðarenda í gamla salnum. Nánari umfjöllun um leikina, úrslit og myndir verða birtar á síðunni við fyrsta tækifæri.
þriðjudagur, 30. október 2007
Íslandsmót Njarðvík 27. og 28. október 2007
Helgina 27. og 28. október 2007 voru strákarnir í minnibolta í Val, 11 ára, að keppa í Njarðvík í fyrstu umferð í Íslandsmótinu. Strákarnir stóðu sig með prýði. Þetta var keppni 4 jafnra liða en 1 lið var í sérflokki.
Á laugardeginum unnu þeir góðan sigur á Snæfelli en töpuðu fyrir Breiðablik. Á sunnudeginum mættu þeir heimamönnum í Njarðvík í fyrsta leik og töpuðu mjög naumlega þar sem Njarðvíkingar náðu að skora síðustu körfuna eftir að Valur hafði leitt mest allan leikinn. Síðasti leikurinn var gegn ÍBV og tapaðist sá leikur illa enda var ÍBV með yfirburðalið á þessu móti og unnu alla leiki sína stórt.
Á vef KKÍ verða úrslit birt og myndir finnið þið hér.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)