þriðjudagur, 30. október 2007

Íslandsmót Njarðvík 27. og 28. október 2007

Helgina 27. og 28. október 2007 voru strákarnir í minnibolta í Val, 11 ára, að keppa í Njarðvík í fyrstu umferð í Íslandsmótinu. Strákarnir stóðu sig með prýði. Þetta var keppni 4 jafnra liða en 1 lið var í sérflokki.

Á laugardeginum unnu þeir góðan sigur á Snæfelli en töpuðu fyrir Breiðablik. Á sunnudeginum mættu þeir heimamönnum í Njarðvík í fyrsta leik og töpuðu mjög naumlega þar sem Njarðvíkingar náðu að skora síðustu körfuna eftir að Valur hafði leitt mest allan leikinn. Síðasti leikurinn var gegn ÍBV og tapaðist sá leikur illa enda var ÍBV með yfirburðalið á þessu móti og unnu alla leiki sína stórt.

Á vef KKÍ verða úrslit birt og myndir finnið þið hér.