Á laugardeginum byrjuðu okkar drengir á því að leggja Ármann að velli nokkuð örugglega. Síðari leikurinn við Skallagrím var geysilega spennandi en tapaðist því miður með minnsta mun eftir að Valur hafði náð góðri forystu eftir tvo leikhluta 27-12. Á sunnudeginum tapaðist leikurinn við Tindastól en fram að lokaleikhluta var mikil spenna, aðeins eitt stig skildi að. Í lokaleiknum við Keflavík vannst nokkuð öruggur sigur þrátt fyrir að aðeins 4 stig hafi skilið í lokin en staðan var 42-22 eftir 3 leikhluta. Tindastólsdrengir stóðu uppi sem sigurvegarar og var það verðskuldað en okkar drengir hrepptu 3. sætið.
Laugardagur 24. nóvember
Valur - Ármann 46-24
Keflavík - Skallagrímur 27-39
Tindastóll - Ármann 50-14
Valur - Skallagrímur 46-47
Keflavík - Tindastóll 25-41
Sunnudagur 25. nóvember
Skallagrímur - Ármann 62-22
Valur - Tindastóll 29-43
Keflavík - Ármann 57-15
Tindastóll - Skallagrímur 22-13
Keflavík - Valur 42-46
Lokastaða
1. Tindastóll
2. Skallagrímur
3. Valur
4. Keflavík
5. Ármann/Þróttur
Sjá einnig myndir frá Hlíðarenda og vef KKÍ.
laugardagur, 24. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli