laugardagur, 12. apríl 2008

Samkaupsmótið 8. - 9. mars 2008 - myndir

Loksins, loksins eru myndir komnar á vefinnn frá Samkaupsmótinu 2008, sem fór fram í Reykjanesbæ helgina 8. - 9. mars 2008.

Mótið var vel heppnað eins og sl. ár, engin stig eru talin eða úrslit birt enda markmiðið fyrst og fremst að auka veg þessarar frábæru íþróttar og hafa gaman af. Aðstandendur eru örugglega sammála um að svo hafi verið. Krakkarnir stóðu sig vel, hópurinn þjappaðist vel saman og stöðugt má greina framfarir.

Myndir frá Samkaupsmóti - 1. hluti.

Myndir frá Samkaupsmóti - 2. hluti

Úrslit í lokaumferð Íslandsmóts MB 11 ára

Keppt er í Smáranum, heimavelli Breiðabliks, í lokaumferð Íslandsmóts minnibolta 11 ára. Í fyrsta leik var att kappi við heimamenn og reyndust þeir of sterkir að þessu sinni fyrir okkar stráka. Breiðablik náði yfirhöndinn snemma og hélt henni og jók við til loka en lokaúrslit voru 27-62. Í síðari leik dagsins mættum við Fjölni og þar var afar spennandi leikur þar sem úrslit réðust á síðustu mínútunni en lokaúrslit voru 43-38 fyrir Val þar sem Ragnar átti glæsilegt skot langt utan að velli þegar lokaflautan gall.

Strákarnir mættu stálslegnir í morgunsárið á sunnudeginum og unnu Njarðvík næsta örugglega 43-28. Úrslit í leik Vals og Tindastóls eru væntanleg..

Mynd frá Smáranum.

föstudagur, 11. apríl 2008

Íslandsmót minnibolta 11 ára um helgina

Um helgina 12. og 13. apríl fer fram lokaumferðin í Íslandsmótinu hjá minnibolta 11 ára í Smáranum í Kópavogi. Leikjaniðurröðun er komin á vef KKÍ.

Nánari umfjöllun um mótið er svo væntanleg.

Úrslit Íslandsmóts minnibolta 10 ára

Um síðustu helgi fóru fram úrslit í minnibolta 10 ára í KR heimilinu.

Strákarnir lögðu Keflavík sannfærandi í fyrsta leik með 9 stiga mun. Í seinni leiknum á laugardeginum mættu þeir KR í æsispennandi leik. Þegar um 5 mínútur voru eftir höfðu strákarnir 6 stiga forskot en síðustu skotin fóru því miður ekki niður hjá þeim meðan þau fóru niður hjá KR og svekkjandi 2 stiga tap varð raunin. Síðari daginn mættu þeir Njarðvík sem sigldu framúr undir lokin með mjög góðum sóknarleik og unnu með 12 stiga mun. Síðasti leikurinn var á móti Grindavík sem hafði unnið alla sína leiki og í raun þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn mjög verðskuldað. Grindvíkingar voru því lausir við allt stress og fóru á kostum með mjög sterkt lið. Óskum þeim til hamingju með titilinn.

Úrslit einstakra leikja má sjá á vef KKÍ en Valur endaði í 4. sæti Íslandsmótsins sem er glæsilegur árangur.

Því miður hefur dregist að setja inn myndir og umfjöllun frá Samkaupsmótinu sem fór fram 8. og 9. mars sl. en mótið tókst í alla staði mjög vel og ekki að sjá annað en að drengirnir hafi skemmt sér vel og hópurinn þjappast vel saman.

sunnudagur, 17. febrúar 2008

Íslandsmót Hlíðarenda 16. - 17. febrúar 2008

Íslandsmót í minnibolta 11 ára fór fram á Hlíðarenda um helgina en helgina áður kepptu 10 ára drengirnir í A-riðli í Njarðvík og unnu 2 leiki en töpuðu 2, en úrslit verða birt á vef KKÍ. Ef foreldrar eru með myndir eða frásögn frá því móti þá endilega látið Sigurjón vita (sigurjono@gmail.com).

Mótið á Hlíðarenda tókst vel. Valur vann 3 leiki og tapaði 1 og lenti því í 2. sæti að þessu sinni. Foreldrar sáu um sjoppurekstur að venju og strákarnir eiga orðinn þokkalegan sjóð til að gera eitthvað skemmtilegt saman í vor.

Úrslit voru eftirfarandi hjá Val

Valur - Njarðvík 50 - 46
Valur - Skallagrímur 38 - 49
Valur - Hamar 43 - 38
Valur - Keflavík 39 - 26

Lokastaðan:

Skallagrímur - 8 stig
Valur - 6 stig
Keflavík - 3 stig
Njarðvík - 2 stig
Hamar - 1 stig

laugardagur, 26. janúar 2008

Reykjavíkurmót minnibolta 11 ára

Helgina 26.- 27. janúar 2008 fór fram Reykjavíkurmót í minnibolta drengja 11 ára í DHL höll KR. Valur sendi vaska sveit 11 ára drengja með góðum stuðningi 97 árgangsins (sem voru reyndar í meirihluta). Fjölnir var með A og B lið eins og KR-ingar en auk þessara liða voru Ármenningar með lið.

Okkar drengir urðu í 2. - 3. sæti ásamt KR b en KR a vann mótið og er Reykjavíkurmeistari 2008. KR a var með mikla yfirburði og unnu 2 leiki með um 100 stiga mun!

Augljóst er að strákarnir eru að sýna miklar framfarir, sérstaklega í varnarleik, og frammistaðan var mjög góð. Greina mátti þreytumerki í síðasta leiknum en þeir komu til baka og sneru töpuðum leik í jafntefli.

Til hamingju drengir með 2. sætið og silfrið!

Úrslit á laugardagi 26. janúar hjá Val voru eftirfarandi:

Fjölnir - Valur 39 - 42
Valur - KR b 36 -36
Valur - Fjölnir b 59 -20

Sem sagt tveir sigrar og eitt jafntefli, ekki er framlengt í minnibolta.

Sunnudagur 27. janúar:

KR - Valur 79 - 21
Valur - Ármann 36 - 36
Valur vann leikinn þar sem Ármann var ekki með tilskilinn fjölda leikmanna.

Myndir frá mótinu

laugardagur, 19. janúar 2008

Reykjavíkurmót minnibolta 10 ára

Helgina 19. og 20. janúar fer fram Reykjavíkurmótið hjá minnibolta 10 ára. Sex lið taka þátt: Valur, KR, ÍR, Ármann og Fjölnir með tvö lið.

Valur lenti í 2. sæti á eftir KR. Strákarnir unnu alla sína leiki örugglega nema á móti KR.

Myndir frá mótinu

laugardagur, 5. janúar 2008

Actavismótið

Í dag laugardag 5. janúar 2008 fór Actavismótið fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Yngri hópurinn, '97 árgangur, keppti fyrir hádegi og eldri hópurinn, '96 árgangur, eftir hádegi. Keppt var 2svar sinnum 10 mínútur en stigin eru ekki sérstaklega talin og standa því allir uppi sem sigurvegarar sem okkar drengir gerðu svo sannarlega.

Myndir eru til frá seinni hlutanum ef einhver er með myndir frá fyrri hlutanum þá sendið þær endilega á sigurjono@gmail.com.

Myndir frá keppni 1996 árgangsins.
Vefur körfuboltadeildar Hauka