föstudagur, 11. apríl 2008

Úrslit Íslandsmóts minnibolta 10 ára

Um síðustu helgi fóru fram úrslit í minnibolta 10 ára í KR heimilinu.

Strákarnir lögðu Keflavík sannfærandi í fyrsta leik með 9 stiga mun. Í seinni leiknum á laugardeginum mættu þeir KR í æsispennandi leik. Þegar um 5 mínútur voru eftir höfðu strákarnir 6 stiga forskot en síðustu skotin fóru því miður ekki niður hjá þeim meðan þau fóru niður hjá KR og svekkjandi 2 stiga tap varð raunin. Síðari daginn mættu þeir Njarðvík sem sigldu framúr undir lokin með mjög góðum sóknarleik og unnu með 12 stiga mun. Síðasti leikurinn var á móti Grindavík sem hafði unnið alla sína leiki og í raun þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn mjög verðskuldað. Grindvíkingar voru því lausir við allt stress og fóru á kostum með mjög sterkt lið. Óskum þeim til hamingju með titilinn.

Úrslit einstakra leikja má sjá á vef KKÍ en Valur endaði í 4. sæti Íslandsmótsins sem er glæsilegur árangur.

Því miður hefur dregist að setja inn myndir og umfjöllun frá Samkaupsmótinu sem fór fram 8. og 9. mars sl. en mótið tókst í alla staði mjög vel og ekki að sjá annað en að drengirnir hafi skemmt sér vel og hópurinn þjappast vel saman.

Engin ummæli: