laugardagur, 26. janúar 2008

Reykjavíkurmót minnibolta 11 ára

Helgina 26.- 27. janúar 2008 fór fram Reykjavíkurmót í minnibolta drengja 11 ára í DHL höll KR. Valur sendi vaska sveit 11 ára drengja með góðum stuðningi 97 árgangsins (sem voru reyndar í meirihluta). Fjölnir var með A og B lið eins og KR-ingar en auk þessara liða voru Ármenningar með lið.

Okkar drengir urðu í 2. - 3. sæti ásamt KR b en KR a vann mótið og er Reykjavíkurmeistari 2008. KR a var með mikla yfirburði og unnu 2 leiki með um 100 stiga mun!

Augljóst er að strákarnir eru að sýna miklar framfarir, sérstaklega í varnarleik, og frammistaðan var mjög góð. Greina mátti þreytumerki í síðasta leiknum en þeir komu til baka og sneru töpuðum leik í jafntefli.

Til hamingju drengir með 2. sætið og silfrið!

Úrslit á laugardagi 26. janúar hjá Val voru eftirfarandi:

Fjölnir - Valur 39 - 42
Valur - KR b 36 -36
Valur - Fjölnir b 59 -20

Sem sagt tveir sigrar og eitt jafntefli, ekki er framlengt í minnibolta.

Sunnudagur 27. janúar:

KR - Valur 79 - 21
Valur - Ármann 36 - 36
Valur vann leikinn þar sem Ármann var ekki með tilskilinn fjölda leikmanna.

Myndir frá mótinu

laugardagur, 19. janúar 2008

Reykjavíkurmót minnibolta 10 ára

Helgina 19. og 20. janúar fer fram Reykjavíkurmótið hjá minnibolta 10 ára. Sex lið taka þátt: Valur, KR, ÍR, Ármann og Fjölnir með tvö lið.

Valur lenti í 2. sæti á eftir KR. Strákarnir unnu alla sína leiki örugglega nema á móti KR.

Myndir frá mótinu

laugardagur, 5. janúar 2008

Actavismótið

Í dag laugardag 5. janúar 2008 fór Actavismótið fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Yngri hópurinn, '97 árgangur, keppti fyrir hádegi og eldri hópurinn, '96 árgangur, eftir hádegi. Keppt var 2svar sinnum 10 mínútur en stigin eru ekki sérstaklega talin og standa því allir uppi sem sigurvegarar sem okkar drengir gerðu svo sannarlega.

Myndir eru til frá seinni hlutanum ef einhver er með myndir frá fyrri hlutanum þá sendið þær endilega á sigurjono@gmail.com.

Myndir frá keppni 1996 árgangsins.
Vefur körfuboltadeildar Hauka