miðvikudagur, 21. október 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

þriðjudagur, 25. ágúst 2009

Velkomin öllsömul

Sæl öllsömul og velkomin í körfuna í vetur.

Við ætlum að reyna að halda blogginu lifandi og er stefnan að allir flokkar hafi sitt eigið blogg sem verði í umsjón þjálfara hvers flokks. Ætlunin er að nota bloggið sem leið til þess að koma skilaboðum á framfæri milli iðkenda, foreldra og þjálfara. Við þjálfararnir munum koma á framfæri skilaboðum á blogginu þegar æfingar falla niður, tíma á aukaæfingum of margt fleira í þeim dúr. Ég skora á ykkur að vera dugleg að nota bloggið í vetur því það mun auðvelda öllum starfið.

Áfram Valur

föstudagur, 21. ágúst 2009

Næsta tímabil. KVK

Jæja..
næsta tímabil fer bráðum að byrja. :)
Við erum allar alveg rosalega spennar fyrir því.
Nýr liðstyrkur fáum við sem er Ragnheiður Benónýsdóttir frá Ármanni.
Næsta markmið verður auðvitað Reykjavíkurmeistaratitill í 9.flokki, og auðvitað 10 og 11 flokki. :)
Verðum duglegar að blogga stelpur. :)
ÁframValurKarfa :o)
Æfingar; mán 20:30, þri 19:35, mið 18:45, fös 20:30, sun 10:00

sunnudagur, 16. ágúst 2009

Næsti Vetur.

Jæja , næsti vetur verður spennandi hjá Val :)
Við stelpurnar ætlum að skrá okkur í Reykjavíkurmóti 9.flokks, en þar sem við erum bara 6 :s Vona að Siggi geti fengið lánaða stráka :) sjáum til ;)
Við ætlum að skrá okkur í RVKmótið í 9,10 og 11 :)
Lyðstyrkur; við fáum kanski 4 stelpuna sem er yfir 180 ;) Hún heitir Ragga og kemur úr Ármanni:) vonum að við fáum þanna liðstyrk. ;}
Þjálfarinn okkar er auðvitað hann Sigurður-Siggi-

Þjálfari strákanna í 7 & 8 flokki er Ari Gunn og Höddi. Lýður verður með alla hina flokkana.
Þjálfari mfl. kvenna er auðvitað Ari Gunn og þjálfari kallana verður Yngvi.

Við sjáum til hvort ég spili eitthvað með strákunum í Vetur :)

En þá er það bara Áfram Valur og áfram karfa! ;)

miðvikudagur, 5. ágúst 2009

Körfuboltanámskeið í ágúst

Vikuna 10.-14. ágúst mun Valur vera með körfuboltanámskeið fyrir börn og unglinga í Vodafone höllinni. Námskeiðið verður frá kl. 9-12 fyrir börn fædd 1998-2003 og kostar 5.000 krónur. Frá 12:30-14:00 er námskeið fyrir eldri börn fædd 1997 og eldri og kostar það 2.500 krónur. Lögð verður sérstök áhersla á þjálfun í smærri hópum auk einstaklingsþjálfunar fyrir eldri þátttakendur skólans.

Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og unnið verður í undirstöðuatriðum. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakenna. Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfunnar. Tekið er við skráningum á netfanginu lydur06@ru.is og á skrifstofu félagsins.

fimmtudagur, 2. júlí 2009

Signý og Hjalti kveðja Vodafonehöllina!



Signý Hermansdóttir fyrirliði landsliðisins kvaddi Vodafonehöllina og fór yfir í KR.
Óskum henni góðs gengis :o)

Hjalti Friðrikson kvaddi líka Vodafonehöllina og fór yfir í Breiðablik.
Óskum honum góðs gengis =o)


Signý Hermansdóttir og Hjalti Friðriks.

miðvikudagur, 10. júní 2009

3. sætið á norðurlandamótinu.

Í síðasta mánuði fóru fjórar Valsstelpur þær Margrét Ósk, Sara, Selma og Elsa með reykvíska stúlknaliðinu á grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Liðið endaði í 3.sæti keppninnar og unnu stelpurnar m.a. glæsilegan sigur á liði Kaupamannahafnar í hörku úrslitaleik um 3.sætið 38-36.

Reykvísku stelpurnar voru mjög vaxandi í keppninni og sögðu fararstjórar að það hefði verið frábært að fylgjast með hvernig þær efldust með hverjum leiknum.


Mynd fyrir neðan!
Bkv.
MaggaKarfa

Reykjavíkurliðið KVK 2009 - Efri röð frá vinstri: St. Bonnie Lúðvíksdóttir Þjálfari, Selma Skúladóttir, Elsa Rún Karlsdóttir, Sara Diljá Sigurðardóttir, Bergdís Sigurðardóttir, Margrét Ósk Einarsdóttir, fyrirliði. Neðri Röð frá vinstri: Gunnhildur Gunnarsdóttir, Sigríður Elísa Eiríksdóttir, Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, Miranda Kelmendi og Sólbjörg Guðrún Vilhelmsdóttir.

laugardagur, 2. maí 2009

Rob Hodgson & Rob Newson.. Farnir ! :(

Sælt verið fólkiiið ! en nú eru Rob H. & Rob N. Farnir frá okkur ;( sem er auðvitað ömurlegt ! þar sem Valur vildi ekki framlengja samning hjá Rob H. & svo fór Rob N. yfir í FSu. En þar sem Yngvi Gunnlaugsson og Ari Gunnarsson voru ráðnir til að þjálfa meistaraflokkana ! Yngvi tekur við Mfl KK og Ari Kvk ! Yngvi var með Haukastúlkurnar og Ari með Hamarsstúlkurnar. Þeir fá þriggja ára samning báðir ;) við tökum bara vel á móti þeim =d. Meira um Ara og Yngva
-----> http://valur.is/Frett/4603/ <------









Ari, Lárus og Yngvi ! =d


kv MaggaKarfa

föstudagur, 10. apríl 2009

Páskabúðir - Gengu mjög vel :D

Páskakörfuboltábúðir Vals gengu rosalega vel. Það voru um það bil 30 krakkar frá aldrinum 92-98, þessar búðir voru í 3 daga. Þjálfarar voru Rob Newson, Rob Hodgson, Birgir og Þorgrímur leikmaður mfl kk =) , í endanum á búðunum fengu sumir verðlaun. Ég fór sjálf í þessar búðir og þær voru geðveikar :D það komu nokkri leikmenn út öðrum liðum :D Svo koma eitthvers staðar myndir veit ekki hvar ;s en ég vona að Valur haldi að hafa svona körfubolta búðir =D
-MaggaKarfa!

p.s minni á fréttina fyrir neðan þessa frétt = Þjófnaður í valsheimilinu!

mánudagur, 6. apríl 2009

Þjófnaður í Valsheimilinu! ,,Þetta er ekkert grín!''

Heyriði. Það hefur verið tekið eftir að það hefur verið stolið alskonar vermætu úr búningsklefunum í Valsheimilinu! Þar sem um daginn var stolið Kreditkorti, pening og tyggjópakka! svo ég vil minna ykkur á sem eru að stunda íþrótti í valsheimilinu og fara í búningsklefa og alls ekki skilja eftir vermæti þar... Frekar að taka það með inní sal. Það er líka hægt að geyma vermæti upp á skrifstofu eða í afgreiðslu. Og þetta er alls ekki neitt grín!! Ég vona bara að þessir hlutir sem voru stolnir komi í leitirnar strax!!

Og ég vona líka að sá/sú sem er að stela svona hlutum gefi sig fram! Þetta er alls ekki gaman fyrir þá sem eiga hlutina.

Kveðja;
MaggaKarfa!

föstudagur, 3. apríl 2009

10.flokkur kvk- Ágætt mót í DHL-höllini =)

Við stelpurnar vorum að keppa í 10. flokki. Í KR heimilinu. Fyrsti leikurinn okkar var við KR. Við stóðum okkur ekkert sérlega vel í sá leik. ;s þannig að við töpuðum hönum með 20 stigum eða eitthvað ;s.. En svo var annar leikur við Hött á Egilsstöðum við sigurðum þær með 10-15 stigum man samt ekki stigaskorið ;s En svo var síðasti leikurinn við Tindastól þar sem þjálfarinn þeirra hefur eitthvað rosalega á móti okkur Valsstúlkum segir að við séum hrokafullar, leiðinlega & eitthvað þannig ;s og þar á milli segir hún að við séum lélegar. En þetta var frekar jafnleikur á móti Tindastól en komust síðan yfir í 3 leikhluta 15 stigum :) Eftir leikinn þá var einn leikmaður vals(nefni ekki nöfn) sem sagði eitthvað við þjálfarann í Tinsastól veit ekki alveg hvað hún sagði. En það kom eitthvað svaka mál útaf því. Þegar við vorum búnar að klæða okkur var þjálfarinn í Tindastól niðri í andyri. Þar sem Leikmaður vals var ''maðurinn meiri,, og baðst afsökunnar en Þjálfari Tindastóls tók ekki fyrirgefninunni og hunsaði hana eiginlega ;s en sagði bara jáhhh og var með leiðindi.. Leikmaður vals áttu ekkert að biðjast afsökunnar ;s þar sem þjálfari tindastóls átti frekar að biðjast afsökunnar ;s en svona er þetta.. ég vona að þjálfarinn hætti að hafa svona mikla fordóma og hroka fyrir okkur og öll önnur lið !. =) en við vorum í B-riðli þannig við erum bara ennþá þar. =)

Körfuboltakv:
MaggaKarfa

þriðjudagur, 24. mars 2009

7. flokkur kk: Góð frammistaða í Hveragerði

Strákarnir í 7. flokki voru að spila lokaumferðina í Íslandsmótinu, C-riðli, núna um helgina í Hveragerði. Þeir spiluðu 4 leiki, unnu 3 og töpuðu einum og lentu í 2. sæti og geta verið sáttir við frammistöðuna. Í fyrsta leiknum á móti ÍR vannst öruggur sigur með um 20 stiga mun. Annar leikur laugardagsins gegn Sindra frá Hornafirði vannst sömuleiðis örugglega með yfir 20 stiga mun. Fyrsti leikur á sunnudegi hófst kl 9 sem hefur aldrei verið sterkasti tími dagsins fyrir okkar drengi :) og þá mættu þeir Tindastóli sem hefur verið með mjög öflugt lið sl. vetur. Valsdrengir sýndu mjög góða frammistöðu en það dugði því miður ekki til sigurs. Góð helgi var svo kórónuð með frábærum sigri á heimamönnum í Hamri, sem voru yfir eftir fyrsta leikhluta en þá gáfu Valsmenn í og sögðu hingað og ekki lengra. Öruggur sigur vannst m.a. með öflugri pressuvörn í lokaleikhlutanum.

Með þessum leikjum er tímabilinu formlega lokið en vonandi fá strákarnir spennandi verkefni áður en veturinn er úti.

Endanleg úrslit verður svo hægt að sjá á vef KKÍ. Mynd af hópnum er væntanleg á vefinn innan skamms.

mánudagur, 23. mars 2009

9.flokkur kvk Sunnudagur.


Jæjaa.. við vorum að keppa aftur á sunnudeginum. Fyrsti leikurinn var við KFÍ og það byrjaði soldið jafnt en við komumst langt yfir í 2 leikhluta! :) þetta var eiginlega Úrslitaleikurinn. hehe.. en við unnum ég man ekki hvað staðan var í loksleiks ;s .. En svo voru 2 leikir á milli og seinasti leikurinn okkar við við Kormák og við rústuðum þeim 44-28 ;* =) það var snilld ;) Þegar leikurinn var búinn hlupum við að stúkunni þar sem við áttum 4 áhorfendur. :) og þar fengum við stórt páskaegg allar saman:D við kláruðum það á 2 míntum haha xD... Og góðu fréttirnar eru að við komumst upp í A-riðil :D:D jeiii;* en jamm svona var þetta;* :D:D:D:D:D

Og strákarnir unnum 3 leiki af 4 frétti ég allaveganna:D en við sjáumst.
ÁframValur;*
-maggakarfa

laugardagur, 21. mars 2009

9.flokkur kvk Laugardagur.


Jæja, við stelpurnar í 9.flokki vorum að keppa í Grindavík... við erum í B-riðil, ég vil bara koma því fram :D hehe.. En við vorum að keppa við Grindavík & Hörð. Við unnum báða leikina. Þegar við spiluðum við Grindavík þá endaði leikurinn 30-38 fyrir okkur. Við vorum yfir allan tímann. Ég man samt ekki hver var stigahæst í þessum leik eða hverjir skoruðu ! ;s En leikurinn við hörð endaði leikurinn 36-26 fyrir okkur ! Við vorum rosalega stressaðar fyrsta leikhlutann, misstum boltann náðum eiginlega aldrei fráköstum í sókn og vörn ;s það var alveg hrikalegt !! En eftir hálfleik spiluðum við okkar leik og róuðum okkur niður ! en mér fannst þetta eiginlega alveg hrikalega illa spilaður leikur hjá okkur ég verð nú að viðurkenna það ! en við unnum. :D hehe en það eru 2 leikir á morgun við KFÍ og Kormák ! :D við ætlum okkur alla leið ! upp í A-riðil :D:D:D:D En já það verður meira um leikina væntanlega á morgun :D .

Og stráka :D vonandi gekk ykkur vel í dag og á morgun :D 7.fl. kk þar sem ég spila ekki með þeim þessa helgi ;s en þið getið rústað þessu strákar :D gangi ykkur vel ;* :D <3

Áfram Valur;*
-MaggaKarfa

Mynd; gömul síðan árið 2007 leikur við Tindastól.

sunnudagur, 15. mars 2009

8.flokkur kvk sunnudagur


Halló:) Við vorum aftur að keppa í dag við Hött og Fjölni. Leikurinn við Hött var soldið bust í fyrstu 3 leikhlutunum Hattar stelpurnar voru með 4 stig fyrstu 3 leikhlutana og við með 20-30 stig :D Leikurinn endaði svo 42-14 fyrir Val. =) Selma slasaðist síðustu 37 sekúndurnar þannig við spiluðum 4 á móti 5 :) Selma var stigahæst með 12 stig, sara kom þar á eftir með 11 stig, svo kom ég með 9 stig , Elsa með 8 stig svo Grace með 2 stig =) uu.. leikurinn við Fjölni var rosalega spennandi ! það var jafn leikurinn fyrstu 2 leikhlutana svo komust við yfir 19-11. Svo endaði leikurinn 31-19 fyrir okkur. Ég veit ekki hver skorað hvað ég man bara að Elsa var stigahæst með 12 stig og ég var með 4 stig ég man ekki hvað var hjá Söru og Selmu Grace skoraði því miður ekki neitt á móti fjölni ;s En það er einn leikur eftir sem er á föstudaginn í næstu vikur semsagt 20. mars 2009' =) Í þessum flokki við KR =) Við erum búnar að vinna alla okkar leiki :D svo við verðum að vinna KR leikinn til að komast upp í A-riðil eða ég held að það sé þannig :D En.. Ég skrifa um þann leik bráðlega :D
Bæbæ
-Áfram Valur
-MaggaKarfa

(Mynd; Margrét Ósk tekur hér lay-op og Sara fylgjir vel á eftir, Mynd úr safni)

laugardagur, 14. mars 2009

8.flokkur kvk


Jæja.. Valsstelpur í 8.flokki eru að keppa nuna um helgina :D við eru búnar að spila einn leik á laugardeginum eða í dag :) við tindastól :D við vorum yfir 11-0 eftir 1 leikhluta og vorum yfir allan tíman :) Ég, Magga :D var stigahæst með 26 stig sara kom þar á eftir með 10 stig, Selma var með 4 stig, Elsa með 2 stig og svo var Grace með 2 stig líka :) við vorum bara 5 og spiluðum allan leikinn :D Leikurinn endaði 44-13 :)=) allar mjöög ánægðar með þennan leik :D svo erum við að keppa á morgun kl. 11 & 14. ;) í valsheimilnum :D það væri frábært ef það gæti eitthver komið ;) og stutt okkur :D ;) þar sem við erum bara 5 :D

Ég vil koma því fram að ég get ekki spilað með 7.flokki KK vegna þess að ég er sjálf að fara að keppa á sama tima ;s ég spila næst með ;) hehe =)

En já :) Sjáumst :D

bkv. MaggaKarfa =)

fimmtudagur, 5. mars 2009

mfl. kvk valur-hamar



Jæja.. Valsstúlkur töpuðu í gær fyrir Hamri 51-70, Valsstúlkur voru alveg að klúðra og voru bara skítlélegar í byrjun leiksins þær voru með 2 stig í 3-4 mínútur á meðan Hamar með 10-13 stig, það var alveg hrikalegt. Valsstelpurnar voru ekki með góða nýtingu á skotunum sínum né Signý undir körfuni. :s

Signý Hermannsdóttir stigahæst með 12 stig, 23 fráköst og 8 varin skot en hún hefur oft skorað meira. Skotnýtingin hjá Valsliðinu var hræðileg eða 27,6% í 2ja og 19% í 3ja og 44% í vítum. Erlendur leikmaður Vals, Melissa Mitidiero var aldrei inn í leiknum og skoraði aðeins 5 stig á þeirri 21 mínútu sem hún spilaði en hún fékk sína fimmtu villu snemma í fjórða leikhluta og munaði miklu þar um.


Valur voru eitthvað mjög slappar í þessum leik sem var alls alls ekki gott, þar sem flestir bjuggust við að þær myndu koma sterkar til leiks, en svo var ekki.


Guðrún leikmaður Vals átti afmæli í gær, til hamingju með það Guðrún, þar sem hún fékk ekki sigur Vals í afmælisgjöf því miður.. ;s

Körfuboltakveðja;
MaggaKarfa=)








þriðjudagur, 3. mars 2009

Mfl. kvk Valur-Hamar


Halló. Það er leikur hjá mfl. kvenna, Valur mæta Hamri í annari umferð. Fyrsti leikurinn var mánudaginn 2.mars sl. Valsstúlkur töpuðu með 9 stigum. Þær verða að vinna á morgun miðvikudaginn 4.mars nk. Í Vodafonehöllini. Þær þurfa allan ykkar stuðning. Svo mættu á leikinn kl. 19.15 á miðvikudaginn 4.mars eða á morgun, ef Valsstúlkur sigra á morgun þá er staðan 1-1 þá er oddaleikur á laugardaginn 7.mars nk. kl. 16.00 í Hveragerði. Þá verða allir að koma og styðja Valsstúlkur Alla leið =)


Áfram Valur =)
Sjáumst vonandi hress og kát á morgun.

-MaggaKarfa.

sunnudagur, 1. febrúar 2009

7. flokkur kk - Íslandsmót

Í dag fór fram 3ðja umferð í Íslandsmóti 7. flokks karla. C-riðli, í Vodafone höllinni. Valur atti kappi við lið Sindra, Hamars og Keflavíkur. Öruggur sigur vannst í fyrsta leik á móti Sindra, 37-19. Þá tók við gríðarlega jöfn rimma við lið Hamars þar sem úrslit réðust á síðustu mínútu, leikurinn tapaðist 38-39 og það voru svekkjandi úrslit eftir góðan leik. Svo virtist sem allur vindur væri úr okkar liði í síðasta leiknum á móti sprækum Keflvíkingum en sá leikur tapaðist með um 20 stigum. Keflavík varð í efsta sæti, unnu alla sína leiki, Hamar í öðru, Valur í þriðja og Sindri rak lestina. Magga keppti með strákunum að þessu sinni og var það mikill styrkur, vonandi getur hún verið með þeim í næstu viðureignum.

laugardagur, 24. janúar 2009

9. flokkur kvk

DagurTímiVöllurLeikurÚrslit

Lau. 31.jan.2009 10.00 DHL-Höllin KR - Valur

Lau. 31.jan.2009 11.15 DHL-Höllin KFÍ - UMFN B

Lau. 31.jan.2009 12.30 DHL-Höllin KFÍ - Valur

Lau. 31.jan.2009 13.45 DHL-Höllin KR - UMFN B

Lau. 31.jan.2009 15.00 DHL-Höllin UMFN B - Valur

Lau. 31.jan.2009 16.15 DHL-Höllin KR - KFÍ

föstudagur, 23. janúar 2009

10.flokks Tap kvk

Hæ aftur. Magga hér :D Við vorum að keppa í gær eins og þið sjáið á greininni fyrir neðan;) við töpuðum Stórt ! lentum í 2 sæti. Þetta var lélegasti leikur sem við höfum spilað. :S en já við sjáumst síða ;)
-MaggaKarfa

fimmtudagur, 22. janúar 2009

Reykjavíkurmót 10.flokks kvk

Við stelpurnar í 10.flokki erum að fara að keppa í kvöld :) í rvk mótinu ;) við KRingana.. Við ætlum okkur alla leið. Það er ekkert annað í boði. Við erum að fara að keppa kl. 17.45 í valsheimilinu ;) Endilega að koma og hvetja okkur til sigurs. Þurfum mesta stuðning í stúkuna.
Sjáumst vonandi í kvöld.

ÁframValur

Körfuboltakveðja;
MaggaKarfa

mánudagur, 12. janúar 2009

Rvk-mót 9. flokks stelpna: Valur í 2. sæti

Við körfuboltastelpurnar vorum að keppa á laugardeginum 10.janúar sl. Við vorum að keppa í Reykjavíkurmóti í 9.flokki. Fyrsti leikurinn okkar var á móti KR og við vorum yfir eiginlega allan tíma staðan 18-18 í hálfleik. Þetta var mjög spennandi og stressandi leikur. Við Valsstúlkurnar gáfum okkur allar í þennan leik. Við töpuðum með 1 stigi, 38-37 við vorum ekki mjög hressar með það. Seinni leikurinn var á móti KR B við unnum þær svo við lentum í 2. sæti á mótinu. Við erum næst að fara að spila á miðvikudaginn nk. þ.e.a.s 14.janúar, á móti Haukum, kl. 20.30 í Vodafone höllinni. Hvetjum alla að koma og hvetja okkur til sigurs. =)

Körfuboltakveðja: Magga.

Áfram Valur & Áfram Karfa =)

Rvk-mót 7. flokks stráka: Valur í 3. sæti

Um helgina fór fram Reykjavíkurmót 7. flokks karla í Seljaskóla. Valsstrákarnir enduðu í 3. sæti í mótinu. Á laugardeginum unnu Valsmenn sterkt lið Ármanns en þurftu að sætta sig við tap gegn KR-ingum sem hafa á að skipa einu besta liði landsins í þessum flokki. Á sunnudeginum tapaðist leikurinn gegn Fjölni eftir að hafa verið í járnum lengst af og voru Valsmenn reyndar yfir eftir 1. leikhluta. Loks vannst mjög öruggur sigur á ÍR, 53-15, í lokaleiknum. Niðurstaðan var 3. sæti en liðin í 2.-4. sæti eru mjög jöfn að getu og hefði Valur hæglega getað náð 2. sætinu.

Úrslit og lokastaða verða birt á vef KKÍ.

fimmtudagur, 8. janúar 2009

Vefur yngri flokka Vals í körfubolta

Þessi vefur var notaður árin 2007-2008 fyrir minniboltann í körfunni hjá Val. Hann hefur legið í dvala frá sl. vori en er nú endurvakinn og í þetta sinn verður hann vettvangur allra yngri flokka Vals í körfunni. Æfingatímar eru tilgreindir hér til hliðar sem og upplýsingar um þjálfara, netfang og símanúmer.

Vakin er athygli á því að hægt er að skoða mótayfirlit allra flokka hjá Val á vef KKÍ. Á þeim vef er ennfremur hægt að skoða úrslit allra móta og leikja hjá Val sem og öðrum félögum.

Við viljum endilega birta myndir og umfjallanir um afrek krakkanna í Val á þessum vef. Það er undir foreldrum, iðkendum og þjálfurum komið hvers virkur vefurinn verður. Hafið samband við Sigurjón ef þið viljið koma efni á framfæri eða enn betra ef þið viljið fá aðgang til að uppfæra sjálf vefinn.

Reykjavíkurmót um helgina
Um næstu helgi, 10. og 11. janúar, fer Reykjavíkurmótið fram hjá nokkrum flokkum: 7. flokki karla, 9. flokki karla og kvenna og 10. flokki karla. Á mánudag er svo Reykjavíkurmót hjá 8. flokki karla. Nánari upplýsingar er að finna á vef KKÍ.