laugardagur, 24. janúar 2009

9. flokkur kvk

DagurTímiVöllurLeikurÚrslit

Lau. 31.jan.2009 10.00 DHL-Höllin KR - Valur

Lau. 31.jan.2009 11.15 DHL-Höllin KFÍ - UMFN B

Lau. 31.jan.2009 12.30 DHL-Höllin KFÍ - Valur

Lau. 31.jan.2009 13.45 DHL-Höllin KR - UMFN B

Lau. 31.jan.2009 15.00 DHL-Höllin UMFN B - Valur

Lau. 31.jan.2009 16.15 DHL-Höllin KR - KFÍ

föstudagur, 23. janúar 2009

10.flokks Tap kvk

Hæ aftur. Magga hér :D Við vorum að keppa í gær eins og þið sjáið á greininni fyrir neðan;) við töpuðum Stórt ! lentum í 2 sæti. Þetta var lélegasti leikur sem við höfum spilað. :S en já við sjáumst síða ;)
-MaggaKarfa

fimmtudagur, 22. janúar 2009

Reykjavíkurmót 10.flokks kvk

Við stelpurnar í 10.flokki erum að fara að keppa í kvöld :) í rvk mótinu ;) við KRingana.. Við ætlum okkur alla leið. Það er ekkert annað í boði. Við erum að fara að keppa kl. 17.45 í valsheimilinu ;) Endilega að koma og hvetja okkur til sigurs. Þurfum mesta stuðning í stúkuna.
Sjáumst vonandi í kvöld.

ÁframValur

Körfuboltakveðja;
MaggaKarfa

mánudagur, 12. janúar 2009

Rvk-mót 9. flokks stelpna: Valur í 2. sæti

Við körfuboltastelpurnar vorum að keppa á laugardeginum 10.janúar sl. Við vorum að keppa í Reykjavíkurmóti í 9.flokki. Fyrsti leikurinn okkar var á móti KR og við vorum yfir eiginlega allan tíma staðan 18-18 í hálfleik. Þetta var mjög spennandi og stressandi leikur. Við Valsstúlkurnar gáfum okkur allar í þennan leik. Við töpuðum með 1 stigi, 38-37 við vorum ekki mjög hressar með það. Seinni leikurinn var á móti KR B við unnum þær svo við lentum í 2. sæti á mótinu. Við erum næst að fara að spila á miðvikudaginn nk. þ.e.a.s 14.janúar, á móti Haukum, kl. 20.30 í Vodafone höllinni. Hvetjum alla að koma og hvetja okkur til sigurs. =)

Körfuboltakveðja: Magga.

Áfram Valur & Áfram Karfa =)

Rvk-mót 7. flokks stráka: Valur í 3. sæti

Um helgina fór fram Reykjavíkurmót 7. flokks karla í Seljaskóla. Valsstrákarnir enduðu í 3. sæti í mótinu. Á laugardeginum unnu Valsmenn sterkt lið Ármanns en þurftu að sætta sig við tap gegn KR-ingum sem hafa á að skipa einu besta liði landsins í þessum flokki. Á sunnudeginum tapaðist leikurinn gegn Fjölni eftir að hafa verið í járnum lengst af og voru Valsmenn reyndar yfir eftir 1. leikhluta. Loks vannst mjög öruggur sigur á ÍR, 53-15, í lokaleiknum. Niðurstaðan var 3. sæti en liðin í 2.-4. sæti eru mjög jöfn að getu og hefði Valur hæglega getað náð 2. sætinu.

Úrslit og lokastaða verða birt á vef KKÍ.

fimmtudagur, 8. janúar 2009

Vefur yngri flokka Vals í körfubolta

Þessi vefur var notaður árin 2007-2008 fyrir minniboltann í körfunni hjá Val. Hann hefur legið í dvala frá sl. vori en er nú endurvakinn og í þetta sinn verður hann vettvangur allra yngri flokka Vals í körfunni. Æfingatímar eru tilgreindir hér til hliðar sem og upplýsingar um þjálfara, netfang og símanúmer.

Vakin er athygli á því að hægt er að skoða mótayfirlit allra flokka hjá Val á vef KKÍ. Á þeim vef er ennfremur hægt að skoða úrslit allra móta og leikja hjá Val sem og öðrum félögum.

Við viljum endilega birta myndir og umfjallanir um afrek krakkanna í Val á þessum vef. Það er undir foreldrum, iðkendum og þjálfurum komið hvers virkur vefurinn verður. Hafið samband við Sigurjón ef þið viljið koma efni á framfæri eða enn betra ef þið viljið fá aðgang til að uppfæra sjálf vefinn.

Reykjavíkurmót um helgina
Um næstu helgi, 10. og 11. janúar, fer Reykjavíkurmótið fram hjá nokkrum flokkum: 7. flokki karla, 9. flokki karla og kvenna og 10. flokki karla. Á mánudag er svo Reykjavíkurmót hjá 8. flokki karla. Nánari upplýsingar er að finna á vef KKÍ.