mánudagur, 12. janúar 2009

Rvk-mót 7. flokks stráka: Valur í 3. sæti

Um helgina fór fram Reykjavíkurmót 7. flokks karla í Seljaskóla. Valsstrákarnir enduðu í 3. sæti í mótinu. Á laugardeginum unnu Valsmenn sterkt lið Ármanns en þurftu að sætta sig við tap gegn KR-ingum sem hafa á að skipa einu besta liði landsins í þessum flokki. Á sunnudeginum tapaðist leikurinn gegn Fjölni eftir að hafa verið í járnum lengst af og voru Valsmenn reyndar yfir eftir 1. leikhluta. Loks vannst mjög öruggur sigur á ÍR, 53-15, í lokaleiknum. Niðurstaðan var 3. sæti en liðin í 2.-4. sæti eru mjög jöfn að getu og hefði Valur hæglega getað náð 2. sætinu.

Úrslit og lokastaða verða birt á vef KKÍ.

Engin ummæli: