fimmtudagur, 8. janúar 2009

Vefur yngri flokka Vals í körfubolta

Þessi vefur var notaður árin 2007-2008 fyrir minniboltann í körfunni hjá Val. Hann hefur legið í dvala frá sl. vori en er nú endurvakinn og í þetta sinn verður hann vettvangur allra yngri flokka Vals í körfunni. Æfingatímar eru tilgreindir hér til hliðar sem og upplýsingar um þjálfara, netfang og símanúmer.

Vakin er athygli á því að hægt er að skoða mótayfirlit allra flokka hjá Val á vef KKÍ. Á þeim vef er ennfremur hægt að skoða úrslit allra móta og leikja hjá Val sem og öðrum félögum.

Við viljum endilega birta myndir og umfjallanir um afrek krakkanna í Val á þessum vef. Það er undir foreldrum, iðkendum og þjálfurum komið hvers virkur vefurinn verður. Hafið samband við Sigurjón ef þið viljið koma efni á framfæri eða enn betra ef þið viljið fá aðgang til að uppfæra sjálf vefinn.

Reykjavíkurmót um helgina
Um næstu helgi, 10. og 11. janúar, fer Reykjavíkurmótið fram hjá nokkrum flokkum: 7. flokki karla, 9. flokki karla og kvenna og 10. flokki karla. Á mánudag er svo Reykjavíkurmót hjá 8. flokki karla. Nánari upplýsingar er að finna á vef KKÍ.

Engin ummæli: