sunnudagur, 1. febrúar 2009
7. flokkur kk - Íslandsmót
Í dag fór fram 3ðja umferð í Íslandsmóti 7. flokks karla. C-riðli, í Vodafone höllinni. Valur atti kappi við lið Sindra, Hamars og Keflavíkur. Öruggur sigur vannst í fyrsta leik á móti Sindra, 37-19. Þá tók við gríðarlega jöfn rimma við lið Hamars þar sem úrslit réðust á síðustu mínútu, leikurinn tapaðist 38-39 og það voru svekkjandi úrslit eftir góðan leik. Svo virtist sem allur vindur væri úr okkar liði í síðasta leiknum á móti sprækum Keflvíkingum en sá leikur tapaðist með um 20 stigum. Keflavík varð í efsta sæti, unnu alla sína leiki, Hamar í öðru, Valur í þriðja og Sindri rak lestina. Magga keppti með strákunum að þessu sinni og var það mikill styrkur, vonandi getur hún verið með þeim í næstu viðureignum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Jú.. veistu ég held að ég væri bara komin í þetta lið ;) það er auðvitað alveg rosalega gaman að spila með sínum flokki, þar sem ég get ekki spilað í mínum flokki hjá stelpunum.
Sjáumst.
-MaggaKarfa
Skrifa ummæli