Strákarnir í 7. flokki voru að spila lokaumferðina í Íslandsmótinu, C-riðli, núna um helgina í Hveragerði. Þeir spiluðu 4 leiki, unnu 3 og töpuðu einum og lentu í 2. sæti og geta verið sáttir við frammistöðuna. Í fyrsta leiknum á móti ÍR vannst öruggur sigur með um 20 stiga mun. Annar leikur laugardagsins gegn Sindra frá Hornafirði vannst sömuleiðis örugglega með yfir 20 stiga mun. Fyrsti leikur á sunnudegi hófst kl 9 sem hefur aldrei verið sterkasti tími dagsins fyrir okkar drengi :) og þá mættu þeir Tindastóli sem hefur verið með mjög öflugt lið sl. vetur. Valsdrengir sýndu mjög góða frammistöðu en það dugði því miður ekki til sigurs. Góð helgi var svo kórónuð með frábærum sigri á heimamönnum í Hamri, sem voru yfir eftir fyrsta leikhluta en þá gáfu Valsmenn í og sögðu hingað og ekki lengra. Öruggur sigur vannst m.a. með öflugri pressuvörn í lokaleikhlutanum.
Með þessum leikjum er tímabilinu formlega lokið en vonandi fá strákarnir spennandi verkefni áður en veturinn er úti.
Endanleg úrslit verður svo hægt að sjá á vef KKÍ. Mynd af hópnum er væntanleg á vefinn innan skamms.
þriðjudagur, 24. mars 2009
mánudagur, 23. mars 2009
9.flokkur kvk Sunnudagur.

Jæjaa.. við vorum að keppa aftur á sunnudeginum. Fyrsti leikurinn var við KFÍ og það byrjaði soldið jafnt en við komumst langt yfir í 2 leikhluta! :) þetta var eiginlega Úrslitaleikurinn. hehe.. en við unnum ég man ekki hvað staðan var í loksleiks ;s .. En svo voru 2 leikir á milli og seinasti leikurinn okkar við við Kormák og við rústuðum þeim 44-28 ;* =) það var snilld ;) Þegar leikurinn var búinn hlupum við að stúkunni þar sem við áttum 4 áhorfendur. :) og þar fengum við stórt páskaegg allar saman:D við kláruðum það á 2 míntum haha xD... Og góðu fréttirnar eru að við komumst upp í A-riðil :D:D jeiii;* en jamm svona var þetta;* :D:D:D:D:D
Og strákarnir unnum 3 leiki af 4 frétti ég allaveganna:D en við sjáumst.
ÁframValur;*
-maggakarfa
laugardagur, 21. mars 2009
9.flokkur kvk Laugardagur.

Jæja, við stelpurnar í 9.flokki vorum að keppa í Grindavík... við erum í B-riðil, ég vil bara koma því fram :D hehe.. En við vorum að keppa við Grindavík & Hörð. Við unnum báða leikina. Þegar við spiluðum við Grindavík þá endaði leikurinn 30-38 fyrir okkur. Við vorum yfir allan tímann. Ég man samt ekki hver var stigahæst í þessum leik eða hverjir skoruðu ! ;s En leikurinn við hörð endaði leikurinn 36-26 fyrir okkur ! Við vorum rosalega stressaðar fyrsta leikhlutann, misstum boltann náðum eiginlega aldrei fráköstum í sókn og vörn ;s það var alveg hrikalegt !! En eftir hálfleik spiluðum við okkar leik og róuðum okkur niður ! en mér fannst þetta eiginlega alveg hrikalega illa spilaður leikur hjá okkur ég verð nú að viðurkenna það ! en við unnum. :D hehe en það eru 2 leikir á morgun við KFÍ og Kormák ! :D við ætlum okkur alla leið ! upp í A-riðil :D:D:D:D En já það verður meira um leikina væntanlega á morgun :D .
Og stráka :D vonandi gekk ykkur vel í dag og á morgun :D 7.fl. kk þar sem ég spila ekki með þeim þessa helgi ;s en þið getið rústað þessu strákar :D gangi ykkur vel ;* :D <3
Áfram Valur;*
-MaggaKarfa
Mynd; gömul síðan árið 2007 leikur við Tindastól.
sunnudagur, 15. mars 2009
8.flokkur kvk sunnudagur

Halló:) Við vorum aftur að keppa í dag við Hött og Fjölni. Leikurinn við Hött var soldið bust í fyrstu 3 leikhlutunum Hattar stelpurnar voru með 4 stig fyrstu 3 leikhlutana og við með 20-30 stig :D Leikurinn endaði svo 42-14 fyrir Val. =) Selma slasaðist síðustu 37 sekúndurnar þannig við spiluðum 4 á móti 5 :) Selma var stigahæst með 12 stig, sara kom þar á eftir með 11 stig, svo kom ég með 9 stig , Elsa með 8 stig svo Grace með 2 stig =) uu.. leikurinn við Fjölni var rosalega spennandi ! það var jafn leikurinn fyrstu 2 leikhlutana svo komust við yfir 19-11. Svo endaði leikurinn 31-19 fyrir okkur. Ég veit ekki hver skorað hvað ég man bara að Elsa var stigahæst með 12 stig og ég var með 4 stig ég man ekki hvað var hjá Söru og Selmu Grace skoraði því miður ekki neitt á móti fjölni ;s En það er einn leikur eftir sem er á föstudaginn í næstu vikur semsagt 20. mars 2009' =) Í þessum flokki við KR =) Við erum búnar að vinna alla okkar leiki :D svo við verðum að vinna KR leikinn til að komast upp í A-riðil eða ég held að það sé þannig :D En.. Ég skrifa um þann leik bráðlega :D
Bæbæ
-Áfram Valur
-MaggaKarfa
(Mynd; Margrét Ósk tekur hér lay-op og Sara fylgjir vel á eftir, Mynd úr safni)
laugardagur, 14. mars 2009
8.flokkur kvk

Jæja.. Valsstelpur í 8.flokki eru að keppa nuna um helgina :D við eru búnar að spila einn leik á laugardeginum eða í dag :) við tindastól :D við vorum yfir 11-0 eftir 1 leikhluta og vorum yfir allan tíman :) Ég, Magga :D var stigahæst með 26 stig sara kom þar á eftir með 10 stig, Selma var með 4 stig, Elsa með 2 stig og svo var Grace með 2 stig líka :) við vorum bara 5 og spiluðum allan leikinn :D Leikurinn endaði 44-13 :)=) allar mjöög ánægðar með þennan leik :D svo erum við að keppa á morgun kl. 11 & 14. ;) í valsheimilnum :D það væri frábært ef það gæti eitthver komið ;) og stutt okkur :D ;) þar sem við erum bara 5 :D
Ég vil koma því fram að ég get ekki spilað með 7.flokki KK vegna þess að ég er sjálf að fara að keppa á sama tima ;s ég spila næst með ;) hehe =)
En já :) Sjáumst :D
bkv. MaggaKarfa =)
fimmtudagur, 5. mars 2009
mfl. kvk valur-hamar


Jæja.. Valsstúlkur töpuðu í gær fyrir Hamri 51-70, Valsstúlkur voru alveg að klúðra og voru bara skítlélegar í byrjun leiksins þær voru með 2 stig í 3-4 mínútur á meðan Hamar með 10-13 stig, það var alveg hrikalegt. Valsstelpurnar voru ekki með góða nýtingu á skotunum sínum né Signý undir körfuni. :s
Signý Hermannsdóttir stigahæst með 12 stig, 23 fráköst og 8 varin skot en hún hefur oft skorað meira. Skotnýtingin hjá Valsliðinu var hræðileg eða 27,6% í 2ja og 19% í 3ja og 44% í vítum. Erlendur leikmaður Vals, Melissa Mitidiero var aldrei inn í leiknum og skoraði aðeins 5 stig á þeirri 21 mínútu sem hún spilaði en hún fékk sína fimmtu villu snemma í fjórða leikhluta og munaði miklu þar um.
Valur voru eitthvað mjög slappar í þessum leik sem var alls alls ekki gott, þar sem flestir bjuggust við að þær myndu koma sterkar til leiks, en svo var ekki.
Guðrún leikmaður Vals átti afmæli í gær, til hamingju með það Guðrún, þar sem hún fékk ekki sigur Vals í afmælisgjöf því miður.. ;s
Körfuboltakveðja;
MaggaKarfa=)
þriðjudagur, 3. mars 2009
Mfl. kvk Valur-Hamar

Halló. Það er leikur hjá mfl. kvenna, Valur mæta Hamri í annari umferð. Fyrsti leikurinn var mánudaginn 2.mars sl. Valsstúlkur töpuðu með 9 stigum. Þær verða að vinna á morgun miðvikudaginn 4.mars nk. Í Vodafonehöllini. Þær þurfa allan ykkar stuðning. Svo mættu á leikinn kl. 19.15 á miðvikudaginn 4.mars eða á morgun, ef Valsstúlkur sigra á morgun þá er staðan 1-1 þá er oddaleikur á laugardaginn 7.mars nk. kl. 16.00 í Hveragerði. Þá verða allir að koma og styðja Valsstúlkur Alla leið =)
Áfram Valur =)
Sjáumst vonandi hress og kát á morgun.
-MaggaKarfa.
Áfram Valur =)
Sjáumst vonandi hress og kát á morgun.
-MaggaKarfa.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)