þriðjudagur, 24. mars 2009

7. flokkur kk: Góð frammistaða í Hveragerði

Strákarnir í 7. flokki voru að spila lokaumferðina í Íslandsmótinu, C-riðli, núna um helgina í Hveragerði. Þeir spiluðu 4 leiki, unnu 3 og töpuðu einum og lentu í 2. sæti og geta verið sáttir við frammistöðuna. Í fyrsta leiknum á móti ÍR vannst öruggur sigur með um 20 stiga mun. Annar leikur laugardagsins gegn Sindra frá Hornafirði vannst sömuleiðis örugglega með yfir 20 stiga mun. Fyrsti leikur á sunnudegi hófst kl 9 sem hefur aldrei verið sterkasti tími dagsins fyrir okkar drengi :) og þá mættu þeir Tindastóli sem hefur verið með mjög öflugt lið sl. vetur. Valsdrengir sýndu mjög góða frammistöðu en það dugði því miður ekki til sigurs. Góð helgi var svo kórónuð með frábærum sigri á heimamönnum í Hamri, sem voru yfir eftir fyrsta leikhluta en þá gáfu Valsmenn í og sögðu hingað og ekki lengra. Öruggur sigur vannst m.a. með öflugri pressuvörn í lokaleikhlutanum.

Með þessum leikjum er tímabilinu formlega lokið en vonandi fá strákarnir spennandi verkefni áður en veturinn er úti.

Endanleg úrslit verður svo hægt að sjá á vef KKÍ. Mynd af hópnum er væntanleg á vefinn innan skamms.

Engin ummæli: