laugardagur, 21. mars 2009

9.flokkur kvk Laugardagur.


Jæja, við stelpurnar í 9.flokki vorum að keppa í Grindavík... við erum í B-riðil, ég vil bara koma því fram :D hehe.. En við vorum að keppa við Grindavík & Hörð. Við unnum báða leikina. Þegar við spiluðum við Grindavík þá endaði leikurinn 30-38 fyrir okkur. Við vorum yfir allan tímann. Ég man samt ekki hver var stigahæst í þessum leik eða hverjir skoruðu ! ;s En leikurinn við hörð endaði leikurinn 36-26 fyrir okkur ! Við vorum rosalega stressaðar fyrsta leikhlutann, misstum boltann náðum eiginlega aldrei fráköstum í sókn og vörn ;s það var alveg hrikalegt !! En eftir hálfleik spiluðum við okkar leik og róuðum okkur niður ! en mér fannst þetta eiginlega alveg hrikalega illa spilaður leikur hjá okkur ég verð nú að viðurkenna það ! en við unnum. :D hehe en það eru 2 leikir á morgun við KFÍ og Kormák ! :D við ætlum okkur alla leið ! upp í A-riðil :D:D:D:D En já það verður meira um leikina væntanlega á morgun :D .

Og stráka :D vonandi gekk ykkur vel í dag og á morgun :D 7.fl. kk þar sem ég spila ekki með þeim þessa helgi ;s en þið getið rústað þessu strákar :D gangi ykkur vel ;* :D <3

Áfram Valur;*
-MaggaKarfa

Mynd; gömul síðan árið 2007 leikur við Tindastól.

Engin ummæli: