fimmtudagur, 5. mars 2009

mfl. kvk valur-hamar



Jæja.. Valsstúlkur töpuðu í gær fyrir Hamri 51-70, Valsstúlkur voru alveg að klúðra og voru bara skítlélegar í byrjun leiksins þær voru með 2 stig í 3-4 mínútur á meðan Hamar með 10-13 stig, það var alveg hrikalegt. Valsstelpurnar voru ekki með góða nýtingu á skotunum sínum né Signý undir körfuni. :s

Signý Hermannsdóttir stigahæst með 12 stig, 23 fráköst og 8 varin skot en hún hefur oft skorað meira. Skotnýtingin hjá Valsliðinu var hræðileg eða 27,6% í 2ja og 19% í 3ja og 44% í vítum. Erlendur leikmaður Vals, Melissa Mitidiero var aldrei inn í leiknum og skoraði aðeins 5 stig á þeirri 21 mínútu sem hún spilaði en hún fékk sína fimmtu villu snemma í fjórða leikhluta og munaði miklu þar um.


Valur voru eitthvað mjög slappar í þessum leik sem var alls alls ekki gott, þar sem flestir bjuggust við að þær myndu koma sterkar til leiks, en svo var ekki.


Guðrún leikmaður Vals átti afmæli í gær, til hamingju með það Guðrún, þar sem hún fékk ekki sigur Vals í afmælisgjöf því miður.. ;s

Körfuboltakveðja;
MaggaKarfa=)








Engin ummæli: