Í síðasta mánuði fóru fjórar Valsstelpur þær Margrét Ósk, Sara, Selma og Elsa með reykvíska stúlknaliðinu á grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Liðið endaði í 3.sæti keppninnar og unnu stelpurnar m.a. glæsilegan sigur á liði Kaupamannahafnar í hörku úrslitaleik um 3.sætið 38-36.
Reykvísku stelpurnar voru mjög vaxandi í keppninni og sögðu fararstjórar að það hefði verið frábært að fylgjast með hvernig þær efldust með hverjum leiknum.
Mynd fyrir neðan!
Bkv.
MaggaKarfa

Reykjavíkurliðið KVK 2009 - Efri röð frá vinstri: St. Bonnie Lúðvíksdóttir Þjálfari, Selma Skúladóttir, Elsa Rún Karlsdóttir, Sara Diljá Sigurðardóttir, Bergdís Sigurðardóttir, Margrét Ósk Einarsdóttir, fyrirliði. Neðri Röð frá vinstri: Gunnhildur Gunnarsdóttir, Sigríður Elísa Eiríksdóttir, Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, Miranda Kelmendi og Sólbjörg Guðrún Vilhelmsdóttir.